Staðarreglur
Staðarreglur á Litlueyrarvelli. Að öðru leyti gilda golfreglur R&A og USGA.
Vallarmörk og út af (regla 2.1)
Vallarmörk eru hvítir hælar og girðing hægra megin 4. brautar.
Bílastæði við skála er út af.
Kirkjugarður er út af.
Staða hluta og merkingar
Bláar stikur og bláar línur afmarka grund í aðgerð.
Augljósar skemmdir af völdum vinnutækja eða vegna framkvæmda eru grund í aðgerð.
Æfingagrín er röng flöt samkvæmt golfreglunum.
Áin, lækir og vötn eru rauð vítasvæði nema merkingar gefi annað til kynna.
Óhreyfanlegar hindranir
Heimreiðin og allir göngustígar eru óhreyfanlegar hindranir sem lausn er veitt frá samkvæmt reglu 16.1 (Óeðlilegar vallaraðstæður – þar á meðal óhreyfanlegar hindranir). Engin lausn fæst samkvæmt reglu 15.2 (Hreyfanlegar hindranir).
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almennt víti samkvæmt reglu 14.7a.
Grund í aðgerð
Trjárækt milli 1. og 7. brautar og hægra megin við 9. braut eru grund í aðgerð sem lausn er veitt frá samkvæmt reglu 16.1 (Óeðlilegar vallaraðstæður – þar á meðal óhreyfanlegar hindranir). Engin lausn fæst samkvæmt reglu 15.2 (Hreyfanlegar hindranir).
Aðgát skal höfð vegna rafmagnsgirðingar.
Fallreitur á 9. holu
Ef bolti hafnar upp við sólpall við 9. flöt telst hann ekki vera út af heldur við óhreyfanlega hindrun. Leikmaðurinn má taka aðra af eftirfarandi lausnum, vítalaust:
• Taka lausn samkvæmt reglu 16.1 (Lausn vegna óeðlilegs ástands vallar).
• Sem viðbótarmöguleika, láta upphaflega boltann eða annan bolta falla innan fallreitsins sem er nálægt sólpallinum, merktur „Fallreitur“. Fallreiturinn er lausnarsvæði samkvæmt reglu 14.3.
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almennt víti samkvæmt reglu 14.7a.
Víti fyrir brot á staðarreglu
Almennt víti: í höggleik tvö högg, í holukeppni holutap.
Að öðru leyti skal leika eftir golfreglum R&A og USGA (Rules of Golf as approved by R&A Rules Limited and the United States Golf Association).