Samþykktir
Samþykktir Golfklúbbs Bíldudals, samþykktar 28. febrúar 2026.
Markmið
1. Markmið Golfklúbbs Bíldudals er að efla golfíþróttina á Bíldudal og skapa meðlimum sínum viðunandi aðstöðu til að stunda íþróttina. Golfklúbbur Bíldudals er aðili að Héraðssambandi Hrafnaflóka (HHF héraðssamband) og Golfsambandi Íslands (GSÍ).
Heimilisfang
2. Heimilisfang klúbbsins er á Hóli á Bíldudal.
Aðild að klúbbnum
3. Allir geta orðið félagar í klúbbnum. Aukafélagar eru þeir sem eru í öðrum klúbbi sem aðalklúbbi. Aukafélagar eru ekki kjörgengir og hafa ekki atkvæðisrétt í klúbbnum.
Úrsögn er bundin við áramót, enda komi hún skriflega til ritara fyrir desemberlok.
Árgjöld og inntökugjald
4. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi. Árgjald skal greiðast fyrir eindaga, eins og fram kemur á greiðsluseðli. Félagsmaður fyrirgerir öllum rétti sínum hafi hann ekki greitt gjöld sín á réttum tíma. Þetta skal honum tilkynnt við útsendingu reikninga fyrir árgjöldum.
Stjórn er heimilt að gera undanþágur frá þessu ef eðlilegar ástæður eru fyrir seinkun á greiðslum.
Aðalfundur ákveður vallargjöld.
Stjórn er heimilt að semja við aðra klúbba innan GSÍ um gagnkvæm afnot golfvalla.
Réttindi aukafélaga til þátttöku í mótum
5. Aukafélagar hafa rétt til þátttöku í öllum mótum klúbbsins, nema meistarakeppni, svo fremi sem lög og reglur ÍSÍ banni það ekki eða reglur gefanda um verðlaun. Verðlaun sem aukafélagar vinna skulu vera í vörslu stjórnar.
Golfreglur
6. Leikið skal eftir golfreglum St. Andrews eins og þær eru á hverjum tíma, en stjórnin setur sérreglur (staðarreglur). Sérhverjum félaga er skylt að fara eftir þeim reglum sem gilda um leikinn, umferð og umgengni á golfvellinum. Brot á gildandi reglum getur varðað við réttindamissi eftir atvikum og brottrekstri ef um ítrekun er að ræða.
Reikningsár
7. Reikningsár klúbbsins er frá 1. janúar til 31. desember.
Kosning og skipan stjórnar
8. Stjórn klúbbsins skipa þrír menn: formaður, ritari, gjaldkeri og tveir varamenn, allir kosnir skriflega með óhlutbundinni kosningu á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs í senn. Aðrir stjórnarmenn, ritari, gjaldkeri og tveir til vara skulu kosnir til tveggja ára í senn.
Stjórnarmenn má endurkjósa, en þeim er ekki skylt að gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Gangi formaður úr stjórn áður en kjörtímabil er liðið, velur stjórnin innan sinna raða nýjan formann til næsta aðalfundar.
Gangi ritari eða gjaldkeri úr stjórn áður en kjörtímabil lýkur, tekur varamaður við því starfi og stjórnin skipar nýjan varamann fram að næsta aðalfundi.
Starfssvið stjórnar
9. Stjórnin skiptir með sér störfum. Henni er heimilt að ráða klúbbnum starfsmenn og greiða þeim laun úr félagssjóði.
Stjórnin fer með öll mál klúbbsins milli aðalfunda. Hún þarf samþykki aðalfundar til stærri ákvarðana, svo sem meiri háttar eignabreytinga, útnefningar heiðursfélaga og annars sem hefur mikil fjárútlát í för með sér.
Stjórnin skipar fulltrúa á þing og í ráð.
Stjórnin skipar fastanefndir, t.d. vallar-, móta- og fræðslunefnd, og fær nefndir aðrar sem hún vill fela ákveðin verkefni.
Aðalfundur
10. Aðalfundur er æðsta úrskurðarvald í öllum málefnum klúbbsins. Aðalfundur skal haldinn í febrúar ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með auglýsingum á áberandi stöðum með viku fyrirvara.
Atkvæðisrétt hafa einungis þeir meðlimir sem náð hafa 18 ára aldri. Aðalfundur skal kjósa fundarstjóra og ritara. Fundargerð skal lesin í fundarlok og borin upp til samþykktar. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
Öðrum tímum ársins getur stjórnin boðað til aukaaðalfundar telji hún efni til, eða ef tíu klúbbfélagar eða fleiri senda henni skriflega rökstudda beiðni þar um.
Slit félagsins
11. Sérstakan fund þarf til að ákveða að leggja klúbbinn niður. Boðunartími slíks fundar skal vera sami og aðalfundar. 2/3 hlutar félaga í klúbbnum skulu vera á fundi og þarf 2/3 atkvæða til að samþykkja tillöguna. Sé þátttaka ekki næg skal boða til nýs fundar innan þriggja vikna og er hann ákvörðunarhæfur um þetta mál og nægir 2/3 hluti atkvæða þeirra sem mættir eru til að ákveða að leggja klúbbinn niður. Eignir Golfklúbbs Bíldudals skulu renna til líknar- og íþróttamála samkvæmt frekari ákvörðun fundarins.