Golf á Vestfjörðum
Á Vestfjörðum eru sex golfvellir, allir níu holur og hver með sinn svip. Þeir liggja við firði og í dölum þar sem sjaldan þarf að bíða á teig, og um hásumarið er bjart fram á nótt. Hér er yfirlit fyrir þá sem vilja taka kylfurnar með vestur.
Litlueyrarvöllur á Bíldudal
Heimavöllur Golfklúbbs Bíldudals stendur við Arnarfjörð, rétt innan við þorpið. Níu holur, par 35, 2.247 metrar af gulum teigum og 1.850 af rauðum. Klúbburinn er lítill og félagslegur og gestum er tekið eins og félögum. Skoðaðu völlinn braut fyrir braut eða bókaðu rástíma í Golfbox.


Gisting og afþreying
Á Bíldudal eru tvö tjaldsvæði, við Skrímslasetrið og á Völuvelli. Á bildudalur.is finnur þú gistingu, mat og það sem er um að vera í þorpinu.
Vesturbotnsvöllur á Patreksfirði
Völlur Golfklúbbs Patreksfjarðar er í Vestur-Botni, innst í Patreksfirði, um 30 km frá Bíldudal. Níu holur, par 72 þegar leiknir eru tveir hringir. Stutt er á milli vallanna tveggja á sunnanverðum Vestfjörðum og því kjörið að spila þá báða í sömu ferð.
Hafa samband: patrogolf.is · gp@patrogolf.is · Facebook · nánar á westfjords.is



Gisting og afþreying
Gisting: Á Patreksfirði eru hótel, meðal annars Fosshótel Vestfirðir og Hótel West, gistiheimili og tjaldsvæði. Yfirlit yfir gistingu á Vestfjörðum og tjaldsvæði er á westfjords.is.
Afþreying: Í bænum er ný og glæsileg útisundlaug, veitingastaðir og kaffihús. Rauðasandur, Látrabjarg og Vatnsfjörður eru í þægilegu ökufæri. Meira um Patreksfjörð á westfjords.is.
Meðaldalsvöllur við Þingeyri
Völlur Golfklúbbsins Glámu er í Meðaldal í Dýrafirði, um fimm kílómetra utan við Þingeyri. Níu holur, par 72 þegar leiknir eru tveir hringir. Umhverfið er einstakt og landslagið fjölbreytt, með alls kyns hindrunum á leiðinni. Þekktust er sjöunda holan, við stífluna, sem margir telja eina af fallegri golfholum landsins.
Hafa samband: Golfklúbburinn Gláma á Facebook · golfklubburinnglama@gmail.com · sími og netfang á westfjords.is



Gisting og afþreying
Gisting: Á Þingeyri er Hótel Sandafell og gistiheimili, og tjaldsvæði er við sundlaugina. Yfirlit yfir gistingu á Vestfjörðum og tjaldsvæði er á westfjords.is.
Afþreying: Lítil og fjölskylduvæn sundlaug, víkingasvæðið og gamla vélsmiðjan, sem er rekin sem lifandi safn. Kaldbakur, hæsta fjall Vestfjarða (998 m), er skammt frá og stutt er að aka að Dynjanda, Hrafnseyri og skrúðgarðinum Skrúði. Meira um Þingeyri á westfjords.is.
Tungudalsvöllur á Ísafirði
Völlur Golfklúbbs Ísafjarðar liggur í hlíð í Tungudal, við hliðina á Bunárfossi og með útsýni út fjörðinn. Níu holur, par 70 þegar leiknir eru tveir hringir. Stutt er yfir til Bolungarvíkur, svo hægt er að taka báða vellina á norðanverðum fjörðunum sama daginn.
Hafa samband: golfisa.is · gi@golfisa.is · nánar á westfjords.is
Gisting og afþreying
Gisting: Á Ísafirði er mest úrval gistingar á Vestfjörðum: Hótel Ísafjörður, Hótel Torfnes, gistiheimili og hostel. Tjaldsvæðið er í Tungudal, sama dal og golfvöllurinn. Yfirlit yfir gistingu á Vestfjörðum og tjaldsvæði er á westfjords.is.
Afþreying: Sjóminjasafnið í Neðstakaupstað, gamli bærinn, Sundhöllin, gönguleiðir og kajakferðir. Frá Ísafirði eru bátsferðir í Vigur og yfir í Hornstrandafriðlandið. Meira um Ísafjörð á westfjords.is.
Syðridalsvöllur í Bolungarvík
Völlur Golfklúbbs Bolungarvíkur er einn örfárra strandvalla á Íslandi. Hann var byggður upp á landi sem áður var að blása upp og liggur nú á milli sandhóla og melgresis með útsýni inn Syðridal. Níu holur með átján teigum, svo seinni hringurinn er ekki eins og sá fyrri. Par 71.
Hafa samband: bolungarvik.is/golf · golfgbo@gmail.com · Facebook-hópur klúbbsins · nánar á westfjords.is
Gisting og afþreying
Gisting: Í Bolungarvík er gistiheimilið Einarshúsið við höfnina og tjaldsvæði við sundlaugina. Stutt er til Ísafjarðar um göngin, þar sem úrvalið er meira. Yfirlit yfir gistingu á Vestfjörðum og tjaldsvæði er á westfjords.is.
Afþreying: Verbúðin Ósvör, útsýnið af Bolafjalli (vegurinn er að jafnaði opinn í júlí og ágúst), Skálavík og sundlaug með heitum pottum og vatnsrennibraut. Einnig er boðið upp á sjóstangveiði. Meira um Bolungarvík á westfjords.is.
Skeljavíkurvöllur við Hólmavík
Völlur Golfklúbbs Hólmavíkur er við Hólmavík við Steingrímsfjörð á Ströndum. Níu holur, par 66 þegar leiknir eru tveir hringir. Hann liggur vel við fyrir þá sem aka Strandir á leið vestur eða til baka.
Hafa samband: Facebook-hópur klúbbsins · benpet@simnet.is · sími og netfang á westfjords.is
Gisting og afþreying
Gisting: Á Hólmavík eru gistiheimili og tjaldsvæði. Yfirlit yfir gistingu á Vestfjörðum og tjaldsvæði er á westfjords.is.
Afþreying: Galdrasafnið, Sauðfjársetrið í Sævangi, útisundlaug með heitum pottum og gönguleiðin um Kálfanesborgir ofan við þorpið. Veitingahúsið Café Riis er í elsta húsi bæjarins. Meira um Hólmavík á westfjords.is.
Golfferð um sunnanverða Vestfirði
Bíldudalur og Patreksfjörður eru stutt hvor frá öðrum og því auðvelt að spila báða vellina í sömu ferð. Á bildudalur.is finnur þú gistingu, mat og það sem er um að vera í þorpinu. Annað hvert ár opnar golfmótið Hamagangur á Hóli bæjarhátíðina Bíldudals grænar baunir, næst 1.–4. júlí 2027.
Algengar spurningar
Hvað eru margir golfvellir á Vestfjörðum?
Sex: á Bíldudal, Patreksfirði, við Þingeyri, á Ísafirði, í Bolungarvík og við Hólmavík. Allir eru níu holur.
Þarf að bóka rástíma á Bíldudal?
Rástímar á Litlueyrarvelli eru skráðir í Golfbox og vallargjald er greitt í skálanum.
Geta gestir spilað á Litlueyrarvelli?
Já. Nýir kylfingar og gestir eru alltaf velkomnir.