Fjölvalsmótið 2026
Fjölvalsmótið var haldið laugardaginn 8. ágúst í þrusuveðri. Leikið var 18 holu punktamót í opnum flokki með verðlaunum fyrir fimm efstu sætin, besta skor kvenna og karla og nándarverðlaunum á 5. og 8. holu.
Keppendur fengu teiggjöf, Elva Mjöll sá um súpu og snarl og það var notalegt að fá heitt kakó í leikslok.
Golfklúbbur Bíldudals þakkar Fjölvali, Hauki Má Sigurðarsyni og Elvu Mjöll Hauksdóttur kærlega fyrir stuðninginn og daginn.





