Vellinum lokað fyrir veturinn
Litlueyrarvelli hefur verið lokað fyrir tímabilið. Stjórn þakkar félögum og gestum kærlega fyrir sumarið. Sjáumst á vellinum í vor!
Litlueyrarvelli hefur verið lokað fyrir tímabilið. Stjórn þakkar félögum og gestum kærlega fyrir sumarið. Sjáumst á vellinum í vor!
Konurnar í klúbbnum hittust til að spila saman hring mánudaginn 7. september kl. 17 og aftur laugardaginn 12. september kl. 13. Allar konur eru velkomnar í kvennagolfið – góð stemning og gaman saman.
Síðasta mót sumarsins, Uppgjörið, fór fram laugardaginn 5. september. Þar eru kvöldmótin sem haldin eru yfir sumarið gerð upp. Mótanefnd á miklar þakkir skildar fyrir starfið í sumar, og sömuleiðis fólkið sem stóð vaktina í eldhúsinu og við frágang.
Litlueyrarvöllur er lokaður um óákveðinn tíma vegna framkvæmda á vegum Landsnets. Það hefur því verið lítið um golf hjá okkur síðsumars, en við vonum að framkvæmdum verði lokið þegar vorar.
Síðasta opna mót sumarsins, Vegamótamótið, fór fram laugardaginn 15. ágúst. Dagurinn hófst á súpu og fyrstu kylfingar fóru út kl. 11:10. Leikið var 18 holu mót með punktaverðlaunum fyrir fimm efstu og verðlaunum fyrir besta skor karla og kvenna. Einnig…
Fjölvalsmótið var haldið laugardaginn 8. ágúst í þrusuveðri. Leikið var 18 holu punktamót í opnum flokki með verðlaunum fyrir fimm efstu sætin, besta skor kvenna og karla og nándarverðlaunum á 5. og 8. holu. Keppendur fengu teiggjöf, Elva Mjöll sá…
Meistaramót GBBí samstarfi við Ískalk fór fram í dagana 2 til 4 Júlí. Keppt var 3 daga þar sem fyrstu tvo dagana var spilað 9 holur hvorn dag og endað á 18 holu hring á laugardeginum. Keppendur voru 20 samtals…
Litlueyrarvöllur er opinn. Munið að skrá rástíma í Golfbox og greiða vallargjald í skálanum.