Fara beint í efnið
Golfklúbbur Bíldudals

Allar fréttir

Vegamótagleðin 2026 – forseti GSÍ í heimsókn

Vegamótamótið 2026

Síðasta opna mót sumarsins, Vegamótamótið, fór fram laugardaginn 15. ágúst. Dagurinn hófst á súpu og fyrstu kylfingar fóru út kl. 11:10.

Leikið var 18 holu mót með punktaverðlaunum fyrir fimm efstu og verðlaunum fyrir besta skor karla og kvenna. Einnig var 9 holu punktamót með fullri forgjöf fyrir byrjendur og þá sem vildu láta einn hring duga, með þrennum verðlaunum. Nándarverðlaun voru á 5. og 8. holu og verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 1. braut.

Gísli Ægir Ágústsson á Vegamótum styrkti mótið og grillaði fyrir keppendur í mótslok. Það var klúbbnum mikill heiður að Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, og Haukur Óskarsson heimsóttu okkur þennan dag.

Klúbburinn þakkar Gísla, mótanefnd og öllum gestum kærlega fyrir daginn.